Funny - Brainy - Incredible

21.04.2007 18:49:28 / fbi_

hahah

 

 

Þessi síða er best !:D

hahha


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 22:51:44 / fbi_

okeeee

jæja... ég bara sú eina sem er að halda einhverju lífi í þessarri síðu hérna ..:/ á ég nokkuð að fara að halda að þetta endi eins og hinar? (ath í flt :P) nei nei ;) We'll make it work ;):D

Allavaga ég er hérna að deyja yfir 2 ritgerðum sem var bara skellt framan í mann í dag til að klára fyrir morgundaginn.. s.s. eina í ensku sem er nú reyndar ekkert mál en það er aðallega íslenskuritgerð sem við eigum s.s. að klára á 2 dögum sem gildir ef mig minnir rétt alveg heil 10% eða var það 5%? en mér er sama það er fjandi mikið samt miðað við að eiga að klára hana á 2 dögum !! :S Og það versta er að við eigum að skrifa um Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxnes sem ég er ekki alveg að fíla ef ég verð að segja satt.. Svona fyrir það fyrsta þá er ég nú eilega ekki búin að lesa hana alla því ég er eiginlega alveg búin að gefast upp á henni þar sem hún er vængefið erfið að skilja og hvað þá að reyna að útskýra :S veit ekki enn alveg hvernig ég á að bea mig að þessu en ég vona bara það besta :)

Annars var ég að frétta í dag að það sé komið í gegn að við fáum að hafa árshátíðina okkar til hálf 3 sem er geggjað :D:D

Svo erum við FBI að fara í party í grafavoginum á mrg.. Drengur þar að nafni Jói sem er að fara að halda uppá sitt 18 ára afmæli og óskum við honum bara til hamingju með það ;) Verður magnað fjör :D
Svo verðum við að taka myndir til að setja inná síðuna ;) 

En ég er allavaga farin að reyna að klára þessa blessuðu íslandsklukku ritgerð og horfa á the nine með öðru auganu ;):P

bæjó

ps. STELPUR BLOGGIÐ :O:O:O :** 


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 09:29:20 / fbi_

Good morning people...

Jæja ætli maður verði ekki að gera e-ð hérna áður en þessi nær metinu hjá okkur og deyr áður en hún byrjaði (nánast) hehe... :)

En jamm... ég er allavaga stödd í matsalnum í MK að gera minna en ekki neitt þar sem stærðfræði kennarinn minn forfallaðist :) bara verst að ég var alvarlega að spá í að skrópa í þennan tíma til að sofa lengur en nei nei fellur kvikindið ekki niður því ég ákvað að koma ! dæmigert...
Eeeen svona til að segja frá e-u sem er að gerast þá vorum við að rústa FG í Gettu Betur.. við erum svo klár ... HAHA ... Annars er allt frekar dautt þessar stundirnar.. nema ef ég heyrði rétt þá er Erla peips að fara til AK í djammferð ? :) og svo skella þau (Hún, Hrefna; Hildur, Hemmi, Halli, Baldur, Steinunn ef það rætirst milli hennar og múttu hennar og einhverjir fleiri sem ég bara man ekki akkurat núna..) sér seinna til Spánar til að toppa það hahah... :P 

Ég ætla bara að halda mig á Íslandi í bili enda er brjál að gera hjá mér þessa stundina í hestunum.. eins og kannski margir vita.. Maður hefur því ekki haft mikinn tíma til þess að vera að hanga mikið í tölvunni og blogga því miður... :P:^) 

En stelpur við verðum að fara að vera duglegar að taka myndir og svona til að setja inná til að gera þetta aðeins líflegra ;) :D

Farin í bili ;) Bæjó (K):haha: 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 20:32:10 / fbi_

Nýjasta nýtt!

Jæja, enn ein ný síðan:)

Gerð fyrst og fremst til að geyma myndir:)... Verður sennilega ekkert alltof mikið um löng og tilfinningaþrungin blogg hérna:)

En endilega tjekkið inn af og til, sérstaklega eftir skemmtilegustu partýin, þar sem FBI's hafa verið með myndavélina á ferð!:)

Later;)

 

FBI's


» 1 hafa sagt sína skoðun


P�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1790 dögum